Ósonlagið er svæði í efri hluta lofthjúps jarðar þar sem styrkur ósons er meiri en annars staðar í lofhjúpnum. Lofthjúpurinn er þunnt gaslag utan um jörðina. Hann er að mestu úr súrefni og nitri en í honum eru einnig aðrar gastegundir. Óson finnst í raun alls staðar í andrúmsloftinu en í mismiklu magni eftir hæð. Mestur eru styrkurinn í um 20 km hæð frá jörðu. Óson er sameind gerð úr þremur súrefnisfrumeindum (O3) og myndast í andrúmsloftinu við samruna súrefnisfrumeinda (O) og súrefnissameinda (O2). Við yfirborð jarðar er gnægð súrefnissameinda (O2) en mjög lítið af súrefnisfrumeindum (O). (JGÞ, 2013)