Jörðin er þriðja reikistjarnan frá sólu. Hún er fimmta stærsta reikistjarna sólkerfisins en stærsta bergreikistjarnan. Bergreikistjörnur eru úr bergi og eru minnstu reykistjörnur sólkerfisins. Jörðin er 330.000 sinnum massaminni en sólin og 109 sinnum minni að þvermáli. Væri sólin hol að innan kæmust meira en milljón jarðir fyrir í henni. Jörðin er jafn gömul sólkerfinu, um 4,6 milljarða ára. Það tekur jörðina 24 klukkustundir að snúast einu sinni í kringum sjálfa sig en heilt ár í kringum sólina. (Sævar Helgi Bragason, 2010)