Flóð og fjara eru trúlega augljósustu dæmin um áhrif tunglsins á jörðina. Sjávarföll eiga sér stað fyrir tilverknað þyngdartogs tunglsins á jörðina, svokallaðra flóðkrafta. Tunglið togar mest í þá hlið jarðar sem snýr að tunglinu og þar lyftast höfin vegna þyngdartogsins um 1 metra að jafnaði. Tunglið togar líka í miðju jarðar en ekki jafn mikið og minnst togar það í þá hlið sem snýr frá tunglinu þá stundina. Því má segja að úthöfin sitji eftir á þeirri hlið jarðar sem snýr frá tunglinu því togkraftur tunglsins á hafið þeim megin er minni en á miðju jarðar. (Sævar Helgi Bragason, 2011)