Snúning jarðar um sjálfan sig köllum við möndulsnúning. Möndulhalli reikistjarna sólkerfisins er mjög mismunandi, allt upp í 90°, og sömuleiðis er möndulsnúningur þeirra ekki allra í sömu áttina. Hins vegar ferðast þær allar í sömu átt kringum sólina. (Sigurður Steinþórsson, 2001)